Skip to main content
search
0

Bako Ísberg heldur stórglæsilega hótelsýningu 30. & 31. mars næstkomandi í húsakynnum fyrirtækisins Höfðabakka 9.

 

Á sýningunni verður allt það nýjasta kynnt fyrir hótel, veitingastaði hótela, hótel bari sem og gistiheimili og útleiguíbúðir.

Bako Ísberg býður upp á mikið úrval af hótelvörum bæði fyrir hótelherbergi, morgunverðahlaðborð, eldhús og veitingastaði allt frá töskurekkum og hárblásurum upp í gufusteikingarofna og innréttingar

Bako Ísberg hefur sinnt stóreldhúsum, veitingastöðum og börum um árabil og hefur umboð fyrir mörg af vinsælustu vörumerkjum landsins á borð við Rational gufusteikingarofna, Steelite borðbúnað, Villeroy & Boch, Zwiesel, WMF, La Sommeliere, Pintinox, Arcos, Tamahagane, Bar Professional svo fátt eitt sé nefnt.

Á sýningunni verða léttar veitingar og vínkynningar frá Innnes, Vínnes, Globus, Reykjavik Brewery og Himbrimi. Fredrik frá Rational verður á staðnum og fer yfir allt það nýjasta frá Rational, en fyrirtækið er með stærstu markaðshlutdeild gufusteikingarofna í heimi. Einnig verður hið eina sanna fyrirmyndarhlaðborð frumsýnt.

Sýningin hefst klukkan 13.00 báða dagana og stendur til 18.00

Starfsfólk Bako Ísberg býður ykkur hjartanlega velkomin á sýninguna

Allir velkomnir – frábært tilboð í boði á sýningunni

Close Menu