Skip to main content
search
0

Bako Ísberg ásamt þjóðinni allri óskar kokkalandsliðinu innilega til hamingju með árangurinn í Stuttgart í gær en þar hreppti liðið gull fyrir fyrstu keppnisgreinina sem það keppti í á Ólympíuleikunum í gær. Gull árangur í fyrstu keppnisgreininni styrkir líkurnar á að liðið nái markmiðum sínum á leikunum, en liðið ætlar sér í eitt af þremur efstu sætunum.

Starfsfólk Bako Ísberg er að springa úr stolti yfir þessu flotta landsliði og óskar þeim áframhaldandi góðum árangri .

Bako Ísberg er stoltur styrktaraðili kokkalandsiðsins, en síðastliðinn október var gerður styrktarsamningur þar sem Bako Ísberg er styrktaraðili liðsins allt til ársins 2026.

Close Menu