Skip to main content
search
0

Skilmálar

 

1. GR. ALMENNT

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Bakó Ísberg ehf., www.bakoisberg.is. 

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Bakó Ísberg ehf. gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Bakó Ísberg ehf. samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Bakó Ísberg ehf., kt. 690517-0350, er staðsett að Höfðabakka 9. Virðisaukaskattsnúmer 97062. Símanúmer er 595-6200. Skrifstofan er opin frá kl. 8 – 16 alla virka daga. Ef þú hefur einhverjar ábendingar um vefverslun, þjónustu eða verslun okkar að Höfðabakka biðjum við þig um að senda okkur tölvupóst á netfangið pontun@bakoisberg.is. 

Sért þú undir 16 ára aldri viljum við vekja athygli þína á að nauðsynlegt er að þú og forráðamenn þínir kynnið ykkur skilmála þessa áður en þú skráir þig inn á síðuna. 

Bako Ísberg ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

2. GR. VERÐ

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Bako Ísberg ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

3. GR. VÖRUR TIL EINKANOTA

Vörurnar í vefverslun Bako Ísberg ehf. eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Bako Ísberg ehf. án tilskilinna leyfa. Bako Ísberg ehf. áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

Hámarksfjöldi í einstaka pöntun er 100 lengjur (1.000 hylki) og mánaðarlega að hámarki 150 lengjur (1.500 hylki). Bako Ísberg ehf. áskilur sér rétt il að ógilda pantanir sem fara fram yfir framangreindan hámarksfjölda og endurgreiða neytanda, ef greiðsla hefur verið innt af hendi. 

4. GR. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

5. GR. GREIÐSLULEIÐIR

Hægt er að inna greiðslu af hendi með greiðslukorti eða Netgíró. Bako Ísberg ehf. er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. Öll verð eru gefin upp með VSK.

6. GR. HEIMSENDING OG FERILL PANTANA

Þegar neytandi verslar í vefverslun Bako Ísberg ehf. er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun eða fá pöntunina heimsenda.

Þegar valið er að sækja vöruna í verslun Bakó Ísberg er hægt að sækja hana eftir kl. 15 sama dag ef pöntunin berst fyrir kl. 13 sama dag, gegn framvísun á sölunótu.
Athugið að fyrst um sinn er ekki hægt að sækja pantanir í Smáralind en við stefnum á að bæta þeim möguleika við á næstu misserum.

Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingartími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingartími er mismunandi eftir því hvar neytandi býr.

Bako Ísberg ehf. er með eigin útkeyrslu á pöntunum á höfuðborgarsvæðinu og megin regla að allar pantanir sem koma fyrir miðnætti daginn áður eru keyrðar út eftir kl. 16 næsta dag. 

Póstur keyrir út pantanir utan höfuðborgarsvæðisins. Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem Pósturinn býður upp á. Nánari upplýsingar á postur.is.

Heimsending er einungis í boði innanlands.

Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er frí heimsending. Annars er greitt samkvæmt gjaldi sem bætist við í greiðsluferli.

7. GR. SKILAFRESTUR

Neytandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi í óuppteknum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið, hyggist neytandi nýta sér skilarétt sinn. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent neytanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.

8. GR. GALLI

Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Bakó Ísberg ehf er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Bakó Ísberg ehf., eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Bakó Ísberg ehf. í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.

9. GR. MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun Bakó Ísberg ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. Með því að skrá sig í meðlimaklúbb Bakó Ísberg gegnum vefsíðu Bakó Ísberg ehf., og kaupum á vöru(m) í vefverslun félagsins samþykkir neytandi slíka söfnun persónulegra upplýsinga. Ef neytandi hefur ekki skráð sig í meðlimaklúbb Bakó Ísberg í gegnum vefverslunina mun Bakó Ísberg ehf. safna sömu upplýsingum og að framan greinir í þeim tilgangi að hægt sé að klára pöntun á vöru(m) í gegnum vefverslunina.

Þegar neytandi skráir sig á póstlista Bakó Ísberg ehf. fer netfang neytanda á póstlista. Hægt er að afskrá sig af póstlista Bakó Ísberg ehf. með því að smella á vefslóð í tölvupósti sem sendur er á netfang neytanda.

Bakó Ísberg ehf. fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.

Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Upp geta komið tilvik þar sem Bakó Ísberg ehf. þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt Bakó Ísberg ehf., og á endanum neytanda, þjónustu. Má sem dæmi nefna vinnslu á debet- og kreditkortafærslum fyrir Bakó Ísberg ehf. Einnig þarf félagið að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda. Bakó Ísberg ehf. hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu en hún er netþjónusta sem gerir félaginu kleift að nota hugbúnað og tæki hjá skýjaþjónustunni. Slík þjónusta felst m.a. í því að varðveita upplýsingar í netþjónum og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.

Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Bakó Ísberg ehf. takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. Bakó Ísberg ehf. veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.

Bakó Ísberg ehf. notar myndavélaeftirlit í verslun sinni. Upptökurnar eru geymdar í dulkóðuðum skrám í allt að 90 daga og þeim eytt eftir það. Ef þær tengjast rekstri máls fyrir dómstólum þá eru þær hugsanlega geymdar lengur. Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur Bakó Ísberg ehf. er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.

Með því að nota vefsíðu og vefverslun Bakó Ísberg ehf. veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og  viðurkennir vinnslu og skrá Bakó Ísberg ehf. á persónuupplýsingum sínum. 

10. GR. VAFRAKÖKUR (E. COOKIES)

“Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Bakó Ísberg ehf. notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Bakó Ísberg ehf. vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.

Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Bakó Ísberg ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Bakó Ísberg ehf., þar á meðal verslunarkerfið.

Bakó Ísberg ehf. notar Google Analytics frá Google og Facebook Pixels til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Bakó Ísberg ehf., t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Bakó Ísberg ehf. notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixels nota sínar eigin kökur en Bakó Ísberg ehf. áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixels. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.

Með því að nota vefverslun Bako Ísberg ehf. samþykkir neytandi að Bakó Ísberg ehf. safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Bakó Ísberg ehf. gætu takmarkast við slíkar breytingar.

 Trúnaður  i. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.Notkun á persónuupplýsingum ii. Sendingar úr kerfi Bakó Ísberg kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

11. GR. LÖG OG VARNARÞING

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

Close Menu