Skip to main content
search
0

PERSÓNUUPPLÝSINGAR

9. GR. MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun Bakó Ísberg ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. Með því að skrá sig í meðlimaklúbb Bakó Ísberg gegnum vefsíðu Bakó Ísberg ehf., og kaupum á vöru(m) í vefverslun félagsins samþykkir neytandi slíka söfnun persónulegra upplýsinga. Ef neytandi hefur ekki skráð sig í meðlimaklúbb Bakó Ísberg í gegnum vefverslunina mun Bakó Ísberg ehf. safna sömu upplýsingum og að framan greinir í þeim tilgangi að hægt sé að klára pöntun á vöru(m) í gegnum vefverslunina.

Þegar neytandi skráir sig á póstlista Bakó Ísberg ehf. fer netfang neytanda á póstlista. Hægt er að afskrá sig af póstlista Bakó Ísberg ehf. með því að smella á vefslóð í tölvupósti sem sendur er á netfang neytanda.

Bakó Ísberg ehf. fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.

Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Upp geta komið tilvik þar sem Bakó Ísberg ehf. þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt Bakó Ísberg ehf., og á endanum neytanda, þjónustu. Má sem dæmi nefna vinnslu á debet- og kreditkortafærslum fyrir Bakó Ísberg ehf. Einnig þarf félagið að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda. Bakó Ísberg ehf. hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu en hún er netþjónusta sem gerir félaginu kleift að nota hugbúnað og tæki hjá skýjaþjónustunni. Slík þjónusta felst m.a. í því að varðveita upplýsingar í netþjónum og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.

Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Bakó Ísberg ehf. takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. Bakó Ísberg ehf. veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.

Bakó Ísberg ehf. notar myndavélaeftirlit í verslun sinni. Upptökurnar eru geymdar í dulkóðuðum skrám í allt að 90 daga og þeim eytt eftir það. Ef þær tengjast rekstri máls fyrir dómstólum þá eru þær hugsanlega geymdar lengur. Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur Bakó Ísberg ehf. er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.

Með því að nota vefsíðu og vefverslun Bakó Ísberg ehf. veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og  viðurkennir vinnslu og skrá Bakó Ísberg ehf. á persónuupplýsingum sínum.

10. GR. VAFRAKÖKUR (E. COOKIES)

“Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Bakó Ísberg ehf. notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Bakó Ísberg ehf. vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.

Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Bakó Ísberg ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Bakó Ísberg ehf., þar á meðal verslunarkerfið.

Bakó Ísberg ehf. notar Google Analytics frá Google og Facebook Pixels til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Bakó Ísberg ehf., t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Bakó Ísberg ehf. notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixels nota sínar eigin kökur en Bakó Ísberg ehf. áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixels. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.

Með því að nota vefverslun Bako Ísberg ehf. samþykkir neytandi að Bakó Ísberg ehf. safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Bakó Ísberg ehf. gætu takmarkast við slíkar breytingar.

Trúnaður  i. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.Notkun á persónuupplýsingum ii. Sendingar úr kerfi Bakó Ísberg kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Close Menu