Skip to main content
search
0

Það þekkja flestir þýska fyrirtækið WMF sem framleitt hefur hágæða eldhúsáhöld í 165 ár.

Fyrirtækið selur í raun öll tæki og tól sem þarf við eldamennsku auk þess sem það selur borðbúnað, leirtau og glös. Samkvæmt WMF þá nota yfir 100 milljón manns WMF vörur daglega í heiminum.

Við já Bako Ísberg höfum verið umboðsaðili fyrir WMF stóreldhús um árabil og hafa vörurnar þeirra heldur betur slegið í gegn.

Margir þekkja vatnskönnurnar frá þeim sem eru með loki og síu þannig að klakar og annað helst í könnunni þegar helt er, en fjölmargir hágæða veitingastaðir hafa einmitt valið þessar könnur.

 

Hnífaparakassarnir þeirra eru á einstöku verði og höfum við reynt að passa vel upp á að vinsælar týpur borð við Boston og Denver séu til á lager hjá okkur. Fyrir jólin seldist hver sendingin upp af annarri en við eru sem betur fer búin að tryggja okkur þessi sett á lager núna.


Í haust varð algjör sprenging í svokölluðum High Tea rekkum frá WMF en fólk getur valið hvaða stell eða diska það notar í rekkana sem seldir eru stakir

 

Einföld og klassísk grind úr burstuðu stáli sem hentar vel til að bera fram ýmsa rétti

Steikarhnífapörin og kjötmælarnir frá WMF eru hið mesta þarfaþing í eldhús allra landsmanna og  það er hægt að ganga að því vísu að við í Bako Ísberg eigum þetta til

WMF hefur unnið til fjölda verðlauna og þykir fyrirtækið í topp 3 sætunum í heiminum í dag þegar kemur að borðbúnaði.

Þú færð WMF í Verslun okkar Höfðabakka 9 sem og í netverslun okkar www.bakoisberg.is

Njótið dagsins 

 

 

 

 

Close Menu