Skip to main content
search
0

 

PINTINOX er ítalskt fyrirtæki sem framleitt hefur potta, pönnur, gastrobakka, hnífapör og ótal eldhúsáhöld úr stáli frá því í byrjun seinustu aldar.

 

Vinsælustu pönnurnar frá Pintinox hjá okku í Bako Ísberg heita ST 1 og þykja þær afar vandaðar og fallegar, en þær þola gas, spam, rafmagn, keramik og halogen.

Pönnurnar koma í 4 stærðum; 20 cm, 24 cm, 28 cm og 30 cm og eru þær 4 mm á þykkt.

Pönnurnar eru með þriggja laga húð að innan sem er gróf viðkomu og býr yfir óvenjulega flottri tækni þannig að það festist ekkert við pönnuna.

Handfangið er sérhannað og tvífest og býr það yfir tækni sem kallast ergonomic air flow

Þessi hágæða og sérhannaða panna gerir það að verkum að eldamennskan gengur fyrr fyrir sig þannig að þú sparar tíma og rafmagn.

 

Við eigum líka járnpönnur sem má segja að séu meira stílaðar inn í á stóreldhús en þær heita Excalibur og hafa þær heldur betur slegið í gegn hjá öllum helstu og vinsælustu veitingastöðum landsins en þær eigum við í öllum stærðum. Þessar geggjuðu pönnur seljast alltaf hratt upp, en við vorum að taka upp stóra sendingu þannig að enn eru allar stærðir til á lager.

Pintenox framleiðir líka potta í öllum stærðum og gerðum en þeir eru sérhannaðir til að þola álag. Pottarnir sem hafa verið vinsælastir hjá okkur í Bako Ísberg heita Tender, en þeir þola gas, ofna, ceramic, spam, rafmagns og halogen.

 

Við vorum að fá nýja sendingu í hús af þessum hágæða pottum og pönnum Pintinox, en hægt að skoða úrvalið í verslun okkar Höfðabakka 9 nú eða að pata beint á www.bakoisberg.is

 

Njótið dagsins kæru vinir!

Close Menu